Kristófer komst upp fyrir Denas í Fortni­te

Kristófer og Denas eru að stinga af í toppbaráttunni í …
Kristófer og Denas eru að stinga af í toppbaráttunni í Fortnite. Grafík/EpicGames

Kristófer Tristan vann seinni leikinn í ELKO-Deildinni í Fortni­te á mánu­dags­kvöld og komst þannig í 1. sæti deildarinnar með 11 stiga for­skot á aðal keppi­nautinn, Denas Kazu­lis.

Fimmta um­­­­­ferð ELKO-Deildarinnar í Fortni­te var spiluð í gærkvöld. Tímabilið er þar með hálfnað og  tækifærunum til þess að ógna Denasi Kazulis (denas 13) og Kristófer Tristan (iKristoo) í toppbaráttunni fækkar því hratt.

Kristófer og Denas hafa skipst á að hirða toppsætið í síðustu umferðum og Denas byrjaði gærkvöldið með 195 stig í 1. sæti þar sem aðeins 10 stig skildu þá Kristófer að.

Kristófer sneri þessari stöðu við með góðum sigri í síðari leik kvöldsins og naut þess þá að losna við Denas sem datt út snemma. 

Kristófer er því nú 11 stigum á undan Denasi í 1. sæti en báðir hafa þeir sigrað fjóra leiki en Kristófer er með 47 fellur á móti 34 hjá Denasi.

Þegar ELKO-Deildin er hálfnuð er staðan á topp fimm svona:

 

1 Kristófer Tristan (iKristoo)                         228
2 Denas Kazulis (denas 13)                          217
3 Emil Víkingur (Rich Emil)                           133
4 Lester Search (aim like Lester)                   111
5 Erlendur Kristjánsson (Stephen 144hz)         94

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert