Þrífram­­lengt í „gjör­­sam­­lega svaka­­legum“ leik

Veca komst alla leið á seiglunni og vann Sögu 2:0 …
Veca komst alla leið á seiglunni og vann Sögu 2:0 í hörkuspennandi viðureign.

„Hvað vor­um við að horfa á hérna?“ spurði Ein­ar Ragn­ars­son, hrist­ur og hrærður, eft­ir beina lýs­ingu hans og Tóm­as­ar Jó­hanns­son­ar á æsi­spenn­andi, þrífram­lengd­um leik Sögu og Veca í 6. um­ferð Ljós­leiðra­deild­ar­inn­ar í Coun­ter Stri­ke í gær.

Sjöttu um­­­­­­­­­ferð Ljós­­­­­leiðara­­­­­deild­ar­inn­ar í Coun­ter Stri­ke lauk á fimmtu­dags­kvöld með þrem­ur leikj­um þar sem allra augu beind­ust að hörku­spenn­andi viður­eign Sögu og Veca sem lauk með þrífram­lengd­um leik í In­ferno þar sem Veca hafði loks sig­ur 22:19.

Veca hafði áður lagt and­stæðing­ana í Sögu að velli í Nuke í fyrri leikn­um sem einnig var æsispenn­andi. Loka­töl­ur þar voru 13-10 fyr­ir Veca sem vann um­ferðina því 2:0.

Úrslit leikja í 6. um­ferð:

Rafík 0:2 Þór 
Dusty 2:0 Ármann   
ÍA 0:2 Hött­ur     
Saga 0:2 Veca       
Kano 2:0 Ven­us     

„Þeir vinna þenn­an leik ótrú­lega. Hvað vor­um við að horfa á hérna?“ sagði Ein­ar, um sína menn í Veca, eft­ir seinni leik­inn og bætti við að hann væri í sjokki. Tóm­as sagði að leik­ur­inn hefði ein­fald­lega verið „gjör­sam­lega svaka­leg­ur.“

„Ég er í sjokki,“ var meðal þess sem Einar Ragnarsson …
„Ég er í sjokki,“ var meðal þess sem Ein­ar Ragn­ars­son hafði til mál­anna að leggja þegar hann og Tóm­as Jó­hanns­son fóru yfir leiki Sögu og Veca.

Þá bætti hann við að Veca hafi kom­ist þetta á hreinni og klárri seiglu. „Þessi leik­ur var tapaður ör­ugg­lega svona ell­efu sinn­um hjá Veca en ein­hvern veg­inn klóruðu þeir sig til baka.“

Sjö­unda um­ferð Ljós­leiðara­deild­ar­inn­ar hefst á þriðju­dag­inn 15. októ­ber ann­ars veg­ar með viður­eign Dusty og Hatt­ar og Kano og ÍA hins veg­ar. Um­ferðin klár­ast síðan á fimmtu­deg­in­um þegar Saga mæt­ir Ármanni, Rafík og Ven­us eig­ast við og Þór tek­ur slag­inn við Veca.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert