Höfuðand­­stæðingarnir skiptu um­ferðinni jafnt

Þegar ELKO-Deildin í Fortnite er rétt hálfnuð hafa Denas og …
Þegar ELKO-Deildin í Fortnite er rétt hálfnuð hafa Denas og Kristófer tekið afgerandi forystu og halda áfram að skiptast nokkuð jafnt á sigrum.

Kristó­fer Trist­an og Den­as Kazu­lis eru enn í tveim­ur efstu sæt­um ELKO-Deild­ar­inn­ar í Fortnite eft­ir að hafa sigrað hvor sinn leik­inn í 6. um­ferð sem var spiluð í gær­kvöld.

Þeir Den­as og Kristó­fer skiptu sigr­um nokkuð jafnt á milli sín á fyrri helm­ingi móts­ins og frammistaða þeirra í gær bend­ir til þess að þeir ætli að upp­tekn­um hætti í seinni hlut­an­um.

Kristó­fer bauð þó upp á þau ný­mæli að vinna fyrri leik kvölds­ins en hann hef­ur átt það til að byrja kald­ur en koma fun­heit­ur inn í seinni leik­ina og sigra þá með tilþrif­um.

Þess­ir höfuðand­stæðing­ar í deild­inni hafa skipst á að hirða topp­sætið í síðustu um­ferðum og eft­ir 5. um­ferð var Den­as 11 stig­um á eft­ir Kristó­fer sem nær enn, naum­lega, að halda topp­sæt­inu.

Staðan á toppi ELKO-Deild­ar­inn­ar:

1 Kristó­fer Trist­an (iKristoo) 228
2 Den­as Kazul­is (den­as 13) 217
3 Emil Vík­ing­ur (Rich Emil) 133
4 Lester Se­arch (aim like Lester) 111

Den­as náði að saxa vel á for­skot Kristó­fers í gær þannig að nú skilja aðeins tvö stig þá að á toppi Elko-Deild­ar­inn­ar þar sem Kristó­fer leiðir með 276 stig en Den­as and­ar ofan í háls­málið á hon­um með 274. Tals­vert langt að baki þeirra er svo Emil Vík­ing­ur í 3. sæti með 158 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert