Sjöundu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike lauk með þremur leikjum á fimmtudagskvöld þar sem hæst bar nokkuð óvæntur 2:1-sigur Veca á Þór, sem heldur þó enn 2. sæti deildarinnar, tveimur stigum, á eftir toppliði Dusty.
Tómas Jóhannsson og Einar Ragnarsson lýstu leik Þórs og Veca í beinni útsendingu á fimmtudagskvöld og sáu ekki eftir því að sá leikur hafi orðið fyrir valinu.
„Þetta var stórskemmtilegt einvígi. Það var dramatík alveg út í gegn,“ sagði Tómas þegar úrslitin lágu fyrir og gekkst síðan fúslega við því að hafa greinilega vanmetið Veca í upphafi tímabilsins.
Einar var að vonum hinn hressasti enda yfirlýstur Veca-maður og fagnaði sigri sinna manna með búningaskiptum. Hann mætti í upphafi jakkaklæddur, eins og svo oft þegar hans lið keppir, en nýtti tækifærið og lauk útsendingunni í gamalli Veca-treyju.
Viðureign Veca og Þórs lauk sem fyrr segir 2-1 en hinir tveir leikir gærkvöldsins fóru þannig að Saga lagði Ármann 2-0 og Rafík sigraði Venus, einnig 2-0.
Kano og ÍA og Dusty og Höttur tókust á fyrr í vikunni þegar leikar fóru þannig að Dusty vann 2-1 og ÍA tapaði 0-2 og situr sem fastast, stiglaust, í neðsta sæti Ljósleiðaradeildarinnar.
Áttunda og næst síðasta umferð deildarinnar hefst þriðjudaginn 22. október þegar Kano og Höttur mætast annars vegar og Saga og Dusty hins vegar.