Þórarinn Þórarinsson
8 umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike hófst á þriðjudagskvöld með þremur leikjum þar sem mest kom á óvart að lið Sögu lagði topplið Dusty að velli 2:0.
Tómas Jóhannsson og Einar Ragnarsson voru á sínum stað í myndveri og lýstu viðureign Dusty og Sögu í beinni útsendingu og gátu ekki leynt því hversu nokkuð öruggur sigur Sögu á toppliði Dusty kom þeim á óvart.
Hinir leikirnir tveir fóru síðan þannig að Kano sigraði Hött 2:1 og Veca afgreiddi Venus 2:0.
Umferðinni, sem er sú næst síðasta, áður en útsláttarkeppnin hefst, lýkur á fimmtudagskvöld með leikjum Rafík og ÍA og Þórs og Ármanns.