Þórarinn Þórarinsson
Topplið OGV afgreiddi botnlið Quick 3:1 í 6. umferð GR Verk Deildarinnar í Rocket League í gærkvöld og er nú með 12 stig í 1. sætinu.
Hressir Þórsarar sigruðu Rafík örugglega 3:0 og eru sem fyrr á hælum OGV með tíu stig í 2. sæti, fjórum stigum á undan Dusty sem eltir í 3. sætinu.
Quick 1:3 OGV
Dusty 3:2 354
Rafik 0:3 Þór
Keppninn í Rocket League heldur áfram miðvikudaginn 30. október þegar Dusty mætir OGV í 7. umferð. 354 keppa við Rafík og Quick þarf að sækja á brattann af botninum gegn Þórsurum.