„Skítaafbrigði“ Björns Þorfinns dugðu gegn Hannesi Hlífari

Hannes Hlífar Stefánsson og Björn Þorfinnsson tókust hart á í …
Hannes Hlífar Stefánsson og Björn Þorfinnsson tókust hart á í átta manna úrslitum Íslandsmótsins í netskák.

Guðmund­ur Kjart­ans­son og Björn Þorfinns­son eru komn­ir áfram í undanúr­slit eft­ir sigra á Al­eks­andr Dom­alchuck og Hann­esi Hlíf­ari Stef­áns­syni í ein­vígj­um þeirra í átta manna úr­slit­um Íslands­móts Sím­ans í net­skák á sunnu­dags­kvöld.

Átta manna úr­slit Íslands­móts Sím­ans í net­skák hóf­ust með tveim­ur ein­vígj­um á sunnu­dags­kvöld þar sem ann­ars veg­ar átt­ust við Guðmund­ur Kjart­ans­son og Al­eks­andr Dom­alchuck og hins veg­ar Hann­es Hlíf­ar Stef­áns­son og Björn Þorfinns­son.

Guðmund­ur átti ekki í telj­andi vand­ræðum með Al­eks­andr og lagði hann sann­fær­andi með 6 sigr­um á móti 2. Ingvar Þór Jó­hann­es­son og Björn Ívar Karls­son lýstu viður­eign­um gær­kvölds­ins í beinni út­send­ingu og viður­kenndu að þessi af­ger­andi niðurstaða hefði komið þeim nokkuð á óvart.

Staðan var öllu tví­sýnni í seinna ein­vígi kvölds­ins þegar þeir átt­ust við stór­meist­ar­inn Hann­es Hlíf­ar og alþjóðlegi meist­ar­inn Björn.

Fyr­ir­fram sögðust lý­send­urn­ir eiga von á skemmti­legu ein­vígi og leyfðu sér einnig að vona að það yrði spenn­andi og bentu á að and­stæðing­arn­ir hefðu mjög ólík­an stíl og nálg­un á skák­ina. Björn væri „flug­eldamaður“ sem nyti sín í svipt­ing­um en Hann­es væri með mikl­um mun tækni­legri stíl.

Guðmundur Kjartansson var sannfærandi í öruggum sigri á Aleksandr Domalchuck.
Guðmund­ur Kjart­ans­son var sann­fær­andi í ör­ugg­um sigri á Al­eks­andr Dom­alchuck.

 Skák­gyðjan reynd­ist síðan meira fyr­ir flug­elda en stíl að þessu sinni og Björn stóð uppi sem sig­ur­veg­ari 6:4 eft­ir ótrú­leg­ar vend­ing­ar í síðustu tveim­ur skák­un­um þar sem Hann­es missti frá sér nán­ast unnið tafl í loka­skák­inni með slæm­um af­leik.

„Maður er bara orðlaus,“ sagði Björn Ívar um yf­ir­sjón Hann­es­ar sem varð til þess að ekk­ert varð af yf­ir­vof­andi bráðabana og Björn gat fagnað því að vera kom­inn áfram í undanúr­slit­in.

„Ein­hvern veg­inn náði ég að grísa á fyrstu skák­ina og þá fór ég nú að verða bjart­sýnn,“ sagði Björn í stuttu spjalli við nafna sinn Ívar eft­ir að úr­slit­in lágu fyr­ir. 

Miklar sviptingar voru í einvígi Hannesar og Björns en sá …
Mikl­ar svipt­ing­ar voru í ein­vígi Hann­es­ar og Björns en sá síðar­nefndi þykir ein­mitt kunna best við sig í slík­um aðstæðum.

 „Svo sagði Hann­es bara nei,“ hélt Björn áfram um næstu þrjár skák­irn­ar sem Hann­es vann. „Hann al­ger­lega pakkaði mér sam­an og ég tefli nátt­úr­lega þessi skíta­af­brigði mín og hann hafnaði þeim bar eig­in­lega. Þannig að ég var í smá brekku.“

Björn sagðist síðan aft­ur hafa verið hepp­inn í brekk­unni miðri og í raun telji hann sig hafa verið hepp­inn í öll­um skák­un­um. Hon­um hafi eig­in­lega alltaf fund­ist hann vera í hálf­gerðum vand­ræðum og vonaði að Hann­es „færi að leika eitt­hvað af sér.“

Að viðureigninni lokinni upplýsti Björn Þorfinnsson nafna sinn Björn Ívar …
Að viður­eign­inni lok­inni upp­lýsti Björn Þorfinns­son nafna sinn Björn Ívar Karls­son um að hon­um hafi fund­ist heppn­in vera með sér í öll­um skák­un­um gegn Hann­esi Hlíf­ari.

Sem hann svo sann­ar­lega gerði og í sein­ustu skák­inni varð ótrú­leg yf­ir­sjón til þess að Björn náði sigri í nán­ast von­lausri stöðu. „Ég var far­inn að rifja upp regl­urn­ar í bráðaban­an­um,“ sagði Björn um hug­ar­ástand sitt í tap­legri skák­inni.

„Þetta var kannski ekki sann­gjarnt en þetta var sætt,“ sagði Björn um úr­slit­in og bætti við að Hann­es hafi reynst hon­um óþægi­leg­ur ljár í þúfu og ef ekki væri fyr­ir Hann­es væri hann þre­fald­ur Íslands­meist­ari í hraðskák eða alla­veg­anna tvö­fald­ur.

„Hann hef­ur eyðilagt marga drauma þannig að það er eig­in­lega bara pínu skemmti­legt að senda hann út í myrkrið núna, smá brot­inn, hann á það skilið eft­ir þján­ing­una sem hann er bú­inn að valda mér,” sagði Björn um leið og hann setti upp sitt kunn­ug­lega glott.

Nætu tvö ein­víg­in á  Íslands­mót­inu í net­skák fara fram eft­ir hálf­an mánuð þegar átta manna úr­slit­in halda áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert