Þriðja sætið í Rocket Leagu­e í brenni­depli

Spennan er í raun orðin mest í kringum 3. sætið …
Spennan er í raun orðin mest í kringum 3. sætið í GR Verk Deild­inni þangað sem Dusty og 354 stefna hiklaust. Grafík/Psyonix

Þegar tvær um­ferðir eru eft­ir af  GR Verk Deild­inni í Rocket League berj­ast lið OGV og Þórs enn á toppn­um en spenn­an í raun orðin mest í kring­um þriðja sætið.

Áttunda um­ferð deild­ar­inn­ar var spiluð á miðviku­dags­kvöld þar sem öll úr­slit voru í raun eft­ir bók­inni. Þór sigraði 354 3:0 á meðan Quick tapaði 1:3 gegn Dusty og OGV staðfesti enn og aft­ur að liðið er það besta í deild­inni með 3:0-sigri á Rafík.

Röð liðanna á stiga­töfl­unni er því nán­ast óbreytt fyr­ir utan að Dusty og 354 hafa sæta­skipti og Dusty er komið í þriðja sæti en 354 vík­ur niður í það fjórða.

Staðan eft­ir 8 um­ferðir:

1. OGV     16

2. Þór       14

3. Dusty     8

4. 354        6

5. Rafik      4

6. Quick     0

Ní­unda og næst­síðasta um­ferðin fer fram eft­ir viku, 13. nóv­em­ber, þegar OGV og 354, Rafík og Quick og Dusty og Þór mæt­ast á vell­in­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert