VECA er Coun­ter Stri­ke lið ársins

Liðsmenn VECA fögnuðu og ljóst að þeirra manni, Einari Ragnarssyni, …
Liðsmenn VECA fögnuðu og ljóst að þeirra manni, Einari Ragnarssyni, leiddist þetta ekkert en hann og Tómas Jóhansson, félagi hans í beinu útsendingunum stýrðu afhendingunni. Ljósmynd/Atli Már

Kepnn­is­tíma­bil Ljós­leiðara­deild­ar­inn­ar var gert upp að lokn­um sigri Dusty á Þór í úr­slitaviður­eign­inni á laug­ar­dags­kvöld. Þá var upp­lýst að lið VECA, sem í fyrra var kennt við Breiðablik, hefði verið valið lið árs­ins 2024 en liðið þótti sýna skemmti­leg tilþrif á tíma­bil­inu auk þess sem ár­ang­ur þess hef­ur komið mörg­um á óvart.

Nýkrýnd­ir deild­ar­meist­ar­arn­ir í Dusty státa af leik­manni tíma­bils­ins, hinum magnaða spil­ara Heiðari Flóvent Friðriks­syni sem á víg­vell­in­um er þekkt­ari sem Midgard.

Rif­ill árs­ins í Ljós­leiðara­deild­inni kem­ur úr röðum silf­urliðs Þórsara en þar varð Ant­onio Kristó­fer Sal­vador (Tony) fyr­ir val­inu. Þórsar­ar voru á hvín­andi sigl­ingu á tíma­bil­inu og höfnuðu í 1. sæti deild­ar­inn­ar fyr­ir um­spil og úr­slita­keppn­ina þar sem þeir máttu sætta sig við tap gegn Dusty.

Ólaf­ur Barði Guðmunds­son, sem spil­ar með Ármanni und­ir leikj­a­nafn­inu „of­virk­ur“, er AWP árs­ins 2024 og Böðvar Breki Guðmunds­son (Zolo), liðsmaður Sögu, þótti hafa tekið mest­um fram­förum á ár­inu og var verðlaunaður fyr­ir það.

Þórsarinn Antonio Kristófer Salvador tók brosmildur við titlinum Riffill ársins.
Þórsar­inn Ant­onio Kristó­fer Sal­vador tók bros­mild­ur við titl­in­um Riff­ill árs­ins. Ljós­mynd/​Atli Már
Heiðar Flóvent Friðriksson úr Dusty er Leikmaður tímabilsins.
Heiðar Flóvent Friðriks­son úr Dusty er Leikmaður tíma­bils­ins. Ljós­mynd/​Atli Már
Fulltrúar Red Bull afhentu viðurkenningarnar og hér stendur AWP ársins, …
Full­trú­ar Red Bull af­hentu viður­kenn­ing­arn­ar og hér stend­ur AWP árs­ins, Ármenn­ing­ur­inn „of­virk­ur“ Ólaf­ur Barði Guðmunds­son, keik­ur með Ein­ari og Tóm­asi. Ljós­mynd/​Atli Már
Sögumaðurinn Böðvar Breki Guðmundsson (Zolo) þótti taka mestum framförum á …
Sögumaður­inn Böðvar Breki Guðmunds­son (Zolo) þótti taka mest­um fram­förum á ár­inu. Ljós­mynd/​Atli Már
Viðurkenningarnar voru veittar í nokkrum flokkum.
Viður­kenn­ing­arn­ar voru veitt­ar í nokkr­um flokk­um. Ljós­mynd/​Atli Már
Tommi lýsandi var traustur á hljóðnemanum á meðan VECA liðar …
Tommi lýs­andi var traust­ur á hljóðnem­an­um á meðan VECA liðar fögnuðu. Ljós­mynd/​Atli Már

Eins og áður seg­ir hlaut VECA, sem féll út í undanúr­slit­um, viður­kenn­ingu sem lið árs­ins en það er skipað þeim Magnúsi Árna Magnús­syni (viruz), Leon­is Zogu (det­hkeik), Eyþóri Atla (wan­ker), Bjarna Þór Guðmunds­syni (Bjarni), Þor­láki Mána Dag­bjarts­syni (furi­ous), Kristjáni Finns­syni (Stjan­i_Guli) og Ein­ari „zim“ Ragn­ars­syni sem var á bekkn­um en þeim mun meira áber­andi í bein­um út­send­ing­um frá deild­inni sem lýs­andi og klapp­stýra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert