Til­finninga­hlaðið úr­slita­upp­gjör

Lærisveinninn, Hjörvar Steinn, og kennarinn, Helgi Ólafsson, munu tefla til …
Lærisveinninn, Hjörvar Steinn, og kennarinn, Helgi Ólafsson, munu tefla til úrslita Íslandsmóts Símans í netskák.

Hjörv­ar Steinn Grét­ars­son og Helgi Ólafs­son komust í úr­slit Íslands­móts­ins í net­skák í gær. Hjörv­ar með sigri á Guðmundi Kjart­ans­syni og Helgi með því að leggja Björn Þorfinns­son að velli.

Báðum undanúr­slitaviður­eign­un­um lauk með 5,5 vinn­ing­um á móti 2,5 en stór­meist­ara­ein­vígi þeirra Hjörv­ars og Guðmund­ar var þó mun jafn­ara og Hjörv­ar þurfti að hafa nokkuð fyr­ir sigr­in­um.

Alþjóðlegi meist­ar­inn Björn Þorfinns­son og stór­meist­ar­inn Helgi Ólafs­son átt­ust við í seinna ein­víg­inu og áður en leik­ar hóf­ust bentu lý­send­urn­ir, Björn Ívar Karls­son og Ingvar Þór Jó­hann­es­son, á að Helgi ætti al­mennt að þykja sterk­ari á svell­inu.

Guðmundur og Björn máttu lúta í lægra haldi í undanúrslitum …
Guðmund­ur og Björn máttu lúta í lægra haldi í undanúr­slit­um fyr­ir Hjörv­ari, ann­ars veg­ar, og Helga hins veg­ar.

Sú varð líka raun­in og Helgi hafði bet­ur með 5,5 vinn­ing­um á móti 2,5 vinn­ing­um Björns sem lánaðist þannig ekki að hefna bræðravígs­ins en Helgi felldi Braga, bróður Björns, úr keppni í síðustu um­ferð.

Það kem­ur því í hlut kenn­ar­ans og læri­sveins­ins, Helga og Hjörv­ars, að berj­ast um Íslands­meist­ara­titil­inn á sunnu­dag­inn, 8. des­em­ber. Varla er við öðru að bú­ast en sú bar­átta verði þrung­in spennu og til­finn­ing­um því Helgi hef­ur lýst Hjörv­ari sem ein­um af sín­um upp­á­halds nem­end­um og Hjörv­ar hef­ur áður sagt að hon­um sé ekki vel við að vinna Helga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert