Pabbi er Klessu­bílakóngur Rocket Leagu­e

Finnski leikmaðurinn Elias „Regser“ Marjala er helsta hetja Þórsara enda …
Finnski leikmaðurinn Elias „Regser“ Marjala er helsta hetja Þórsara enda bæði skytta og markamaskína tímabilsins. Ljósmynd/Þórlindur

Íslands­meist­ar­ar Þórs voru frek­ir til fjörs­ins á úr­slita­kvöldi GR Verk Deild­ar­inn­ar í Rocket League en auk þess að hampa bik­arn­um sópuðu þeir til sín viður­kenn­ing­um fyr­ir frammistöðuna á tíma­bil­inu.

Eins og sjá má á meðfylgj­andi mynd­um var stuðið keyrt í botn í Ar­ena á laug­ar­dags­kvöld þegar keppn­is­tíma­bil GR Verk Deild­ar­inn­ar í Rocket League var klárað með góðri upp­skeru­hátíð og hörku­spenn­andi úr­slitaviður­eign Þórs og OGV.

Kvöldið varð býsna rautt áður en upp var staðið en auk þess að tryggja sér Íslands­meist­ara­titil­inn með 4:1-sigri hlutu liðsmenn Þórs flest­ar viður­kenn­ing­ar fyr­ir ýmis tilþrif og seiglu á tíma­bil­inu.

Varla er á nokk­urn hallað þegar því er slegið fram að Þórsar­inn Eli­as „Regser“ Mar­jala hafi verið maður kvölds­ins og jafn­vel tíma­bils­ins.

Sér­stak­lega þegar horft er til fjölda viður­kenn­inga en Eli­as var bæði val­inn Marka­maskína og Skytta tíma­bils­ins auk þess að hljóta titil­inn Oat King tíma­bils­ins.

Liðsfé­lagi Eli­as­ar, Kristján „pabb­i4“ Elm­ar Gott­skálks­son, var út­nefnd­ur Klessu­bíla­kóng­ur tíma­bils­ins en Munda úr 354 tókst að bjarga einni viður­kenn­ingu frá því að enda fyr­ir norðan með því að krækja í titil­inn Stoðsend­inga­séní tíma­bils­ins.

Allsherjar útkall var í myndver beinu lýsingarinnar þar sem leikskýrendur …
Alls­herj­ar út­kall var í mynd­ver beinu lýs­ing­ar­inn­ar þar sem leik­skýrend­ur tíma­bils­ins slógu hvergi af í stuðinu. Ljós­mynd/Þ​órlind­ur
Þórsarar bregða bikarnum á loft með tilheyrandi fagnaðarlátum.
Þórsar­ar bregða bik­arn­um á loft með til­heyr­andi fagnaðar­lát­um. Ljós­mynd/Þ​órlind­ur
Nú er það rautt...
Nú er það rautt... Ljós­mynd/Þ​órlind­ur
Sjálfsagt er ekki verra að hafa haframjöl við höndina þegar …
Sjálfsagt er ekki verra að hafa haframjöl við hönd­ina þegar til­finn­ing­arn­ar bera menn of­urliði. Ljós­mynd/Þ​órlind­ur
Kristján Elmar Gottskálksson, sem spilar undir leikjanafninu „pabbi4“, hlaut ef …
Kristján Elm­ar Gott­skálks­son, sem spil­ar und­ir leikj­a­nafn­inu „pabb­i4“, hlaut ef til vill minnst „pabba­legu“ viður­kenn­ing­una sem Klessu­bíla­kóng­ur tíma­bils­ins. Ljós­mynd/Þ​órlind­ur
Þórsarinn Stefán Máni Unnarsson tekur verðskulduðum hamingjuóskum opnum örmum.
Þórsar­inn Stefán Máni Unn­ars­son tek­ur verðskulduðum ham­ingjuósk­um opn­um örm­um. Ljós­mynd/Þ​órlind­ur
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert