Þórarinn Þórarinsson
Dusty sigraði Kano 2:0 í fyrri umferð undanúrslita RIG í Counter Strike í gærkvöld og mætir því annaðhvort Veca eða Sögu í úrslitaleiknum í Laugardalshöllinni á laugardaginn.
Kano og Dusty hófu leika í Nuke þar sem fyrrnefnda liðinu tókst að setja mikla pressu á Dusty sem átti á köflum í vök að verjast en tókst þó að leggja andstæðingana 13:11.
Allt önnur staða var uppi í seinni leiknum sem fór fram í Anubis og lauk 13:4. Sem sagt svokallað „burst“ eins og þeir Tómas Jóhannsson og Ólafur Hrafn Steinarsson sammæltust um en þeir lýstu viðureigninni í beinni útsendingu Sjónvarps Símans og á streymisrásum Rafíþróttasambandsins.
Ásmundur Viggósson (Pandaz), sem keppti með Þór í Ljósleiðaradeildinni á síðasta tímabili, var funheitur með Dusty í gærkvöld og Ólafur Hrafn tilnefndi hann hiklaust MVP í báðum leikjum og þar með seríunni.
Seinni umferð undanúrslita RIG verður spiluð á fimmtudaginn og að henni lokinni liggur fyrir hvort það verði Veca eða Saga sem mæta Dusty í úrslitaleiknum sem fer fram í Laugardalshöll á laugardaginn, 25. janúar.