Ökuþórinn Ollie Bearman hjá Ferrari var aðeins 0.036 frá því að byrja þriðji í hans fyrsta kappakstri í Formúlu 1 í Sádi-Arabíu.
Carlos Sainz er með botnlangabólgu og getur því ekki tekið þátt í kappakstri helgarinnar en Bearman var kallaður í hans stað. Hann er aðeins 18 ára gamall en hefur verið frábær í Formúlu 2, 3 og 4.
A super impressive start! 🤯
— Scuderia Ferrari (@ScuderiaFerrari) March 8, 2024
In his first @F1 Quali, @OllieBearman qualifies P11 and just misses out on Q3 by 0.036 🤏#SaudiArabianGP #F1 pic.twitter.com/DWCwYN5qTl
Max Verstappen hjá Red Bull byrjar fremstur, Charles Leclerc, liðsfélagi Bearman í Ferrari byrjar annar og Sergio Perez í Red Bull byrjar þriðji.