Sviptingar í formúlunni

Jack Doohan fékk aðeins sex keppnir.
Jack Doohan fékk aðeins sex keppnir. AFP/Chandan Khanna

For­ráðamenn Formúlu 1-liðsins Alp­ine hafa ákveðið að Franco Colap­into muni keyra ann­an bíl liðsins í næstu fimm keppn­um hið minnsta.

Mun Colap­into leysa Jack Dooh­an af hólmi en þeir eru báðir nýliðar í Formúlu 1 á tíma­bil­inu.

Er ákvörðunin tek­in eft­ir aðeins sex keppn­ir á tíma­bil­inu en Dooh­an hef­ur enn ekki náð í eitt ein­asta stig fyr­ir franska liðið.

Pier­re Gas­ly, hinn ökuþór Alp­ine, er í 12. sæti í keppni ökuþóra með sjö stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert