Breski ökuþórinn Lando Norris sem keyrir fyrir McLaren mun byrja á ráspól á morgun í Formúlu 1 kappakstrinum í Mónakó.
Norris var hraðastur allra í tímatökunum en heimamaðurinn Charles Leclerc, sem keyrir fyrir Ferrari, mun ræsa annar.
Oscar Piastri, liðsfélagi Norris og sá sem leiðir heimsmeistaramót ökuþóra, mun byrja þriðji og sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton ræsir fjórði.
Ríkjandi heimsmeistarinn Max Verstappen kemur á eftir Hamilton og byrjar fimmti á morgun.