Stuðningsmenn furðulostnir vegna Karólínu

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir fer aftur á lán til Bayer Leverkusen.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir fer aftur á lán til Bayer Leverkusen. Eggert Jóhannesson

Stuðningsmenn þýska knattspyrnustórveldisins Bayern München eru hissa á ákvörðun félagsins að senda landsliðskonuna Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur aftur á lán til Bayer Leverkusen. 

Karólína endursamdi við Bayern til ársins 2026 í dag en hún verður á láni hjá Bayer Leverkusen á næsta tímabili. 

Karólína var á láni hjá Leverkusen á síðasta tímabili og stóð sig með prýði. Margir stuðningsmenn bjuggust við að hún yrði hluti af liði Bayern á næsta tímabili. 

Af hverju annað tímabil hjá Leverkusen?

Stuðningsmenn Bayern eru furðulostnir á ákvörðuninni eins og má sjá undir tilkynningu Bæjara á Instagram. 

Einn þeirra skrifaði: 

„Frábært að hún sé að framlengja en hún er klárlega nógu góð í stærra hlutverk hjá okkur. Ég skil ekki af hverju hún er að fara aftur á lán.“

Annar sagði: 

„Gangi þér vel Karólína, en af hverju annað tímabil hjá Leverkusen?“

„Það er mjög mikilvægt að hún framlengdi. Ég hefði hins vegar viljað sjá hana hér á næsta tímabili,“ sagði þriðji en flest ummæli undir tilkynningunni eru í sama dúr. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert