Belgíska A-deildarliðið Kortrijk hefur gefið út að tólf leikmenn séu á förum frá félaginu. Freyr Alexandersson er þjálfari liðsins.
Átta af leikmönnunum tólf sem eru á förum voru lánsmenn sem snúa aftur til sinna félaga, tveir eru samningslausir og tveir hafa verið lánaðir í önnur lið.
Freyr var til viðtals í útvarpsþætti fotbolti.net á dögunum þar sem hann sagðist vera á höttunum eftir tíu nýjum leikmönnum.