Íslenski landsliðsmaðurinn Kolbeinn Birgir Finnsson, leikmaður Lyngby í Danmörku, er á óskalista Holstein Kiel í þýsku 1. deildinni.
Þetta greindi danska Tipsbladet frá í dag en Kolbeinn er vinstri bakvörður og kom til Lyngby árið 2023.
Kolbeinn hefur verið í lykilhlutverki hjá Lyngby en hann hefur spilað 46 leiki með félaginu, skorað fjögur mörg og lagt jafn mörg upp.
Holstein Kiel er nýliði í 1. deildinni í Þýskalandi en liðið lenti í öðru sæti í B-deildinni á síðasta tímabili.