Chelsea hefur áhuga á ólympíufaranum

Samu Omorodion er að keppa á Ólympíuleikunum.
Samu Omorodion er að keppa á Ólympíuleikunum. AFP/Philippe Lopez

Enska úrvalsdeildarfélagið í fótbolta, Chelsea, hefur áhuga á því að fá spænska framherjann Samu Omorodion frá Atletico Madrid.

Sky Sports greinir frá þessu en Omorodion er þessa stundina að keppa í fótbolta á Ólympíuleikunum í París en liðið er komið í úrslitaleikinn og mætir Frakklandi níunda ágúst.

Hann er 20 ára gamall og kom til liðsins á síðasta tímabili, nokkrum dögum eftir fyrsta leik hans í deildinni fyrir Granada.

Hann skoraði átta mörk í 35 leikjum á síðasta tímabili en hann var á láni hjá Alaves sem lenti  í 10. sæti í spænsku deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert