Hrópaði á æðri máttarvöld þegar Jóhann skoraði

Jóhann Berg Guðmundsson skoraði í dag.
Jóhann Berg Guðmundsson skoraði í dag. Ljósmynd/Al-Orobah

Jóhann Berg Guðmundsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir sádiarabíska knattspyrnuliðið Al-Orobah er liðið gerði jafntefli við Al-Kholood í efstu deild þar í landi í dag.

Instagram-síða félagsins birti myndband af markinu í dag með afar skrautlegri lýsingu. Kallar lýsandinn nokkrum sinnum á æðri máttarvöld og lýsir markinu vel og lengi af mikilli innlifun.

Markið má sjá hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert