Tilkynnti liðið á Whatsapp

Vincent Kompany fer óhefðbundnar leiðir.
Vincent Kompany fer óhefðbundnar leiðir. AFP/Alexandra Beier

Stjórnunarhættir Vincent Kompany hafa vakið furðu leikmanna Bayern München en þrátt fyrir góða byrjun á tímabilinu hafa leikmenn liðsins verið hissa yfir samskiptaleiðum Belgans.

Kompany er sagður hafa tilkynnt byrjunarlið liðsins í gegnum samskiptaforritið Whatsapp daginn fyrir bikarleik Bayern gegn Holstein Kiel. Leikmenn eins og Aleksandar Pavlovic og Micheal Olise fengu þar að vita í gegnum tilkynningu á símanum að þeir væru dottnir út úr byrjunarliðinu fyrir leikinn.

Leiknum lauk með 6:1-sigri Bayern og 9:2-sigur liðsins á Dynamo Zagreb í Meistaradeildinni á þriðjudag gerir það að verkum að liðið hefur unnið alla leikina það sem af er tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert