Byrjaði fyrsta leikinn á Spáni

Orri Steinn Óskarsson í leiknum í dag.
Orri Steinn Óskarsson í leiknum í dag. Ljósmynd/Real Sociedad

Real Sociedad og Real Valladolid skildu jöfn, 0:0, á heimavelli síðarnefnda liðsins í spænsku 1. deildinni í fótbolta í dag.

Orri Steinn Óskarsson var í fyrsta skipti í byrjunarliði Sociedad síðan hann gekk í raðir félagsins frá FC Kaupmannahöfn um síðustu mánaðarmót.

Íslenski landsliðsmaðurinn lék fyrstu 61 mínútuna fyrir gestina en tókst ekki að skora, frekar en öðrum leikmönnum.

Tímabilið hefur verið erfitt hjá Sociedad til þessa. Liðið er í 16. sæti af 20 liðum með aðeins fimm stig í sjö leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert