Dagný sneri aftur

Dagný Brynjarsdóttir er mætt aftur.
Dagný Brynjarsdóttir er mætt aftur. Ljósmynd/West Ham

Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir spilaði sinn fyrsta leik í hálft annað ár í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Dagný lék fyrri hálfleikinn með West Ham er liðið heimsótti Manchester United í fyrstu umferðinni í dag.

Því miður fyrir íslensku landsliðskonuna og liðsfélaga hennar máttu þær þola tap, 3:0.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert