Fóru upp að hlið toppliðsins

Davíð Kristján Ólafsson
Davíð Kristján Ólafsson Ljósmynd/KSÍ

Cracovia fór upp að hlið toppliðs Lech Poznan með útisigri á Puszcza, 2:1, í pólsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Davíð Kristján Ólafsson lék seinni hálfleikinn með Cracovia sem hefur unnið fjóra leiki af síðustu fimm.

Liðið er með 19 stig eftir níu leiki. Davíð og félagar enduðu í 13. sæti á síðustu leiktíð en yfirstandandi tímabil byrjar mun betur.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert