Lagði upp og skoraði sjálfsmark

Rúnar Þór Sigurgeirsson.
Rúnar Þór Sigurgeirsson. Ljósmynd/Willem II

Rúnar Þór Sigurgeirsson lagði upp fyrir Willem II og skoraði sjálfsmark í 3:2-tapi liðsins gegn Utrecht í hollensku úrvalsdeildinni í dag.  

Rúnar Þór lagði upp fyrra mark Willem II á Cisse Sandra sem skoraði bæði mörk liðsins. Rúnar Þór varð síðan fyrir því óláni að skora sjálfsmark og reyndist markið vera sigurmark Utrecht.  

Kolbeinn Finnsson var ónotaður varamaður fyrir Utrecht en Rúnar spilaði fyrstu 88 mínútur leiksins.  

Utrecht er í þriðja sæti deildarinnar með 13 stig en Willem II situr í fimmta sæti með átta stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert