Mbappé óstöðvandi í Madrid

Kylian Mbappé skoraði í fimmta leiknum í röð.
Kylian Mbappé skoraði í fimmta leiknum í röð. AFP/Javier Soriano

Real Madrid hafði betur gegn Alaves, 3:2, í sjöundu umferð spænsku 1. deildarinnar í fótbolta í kvöld.

Lucas Vazquez kom Real yfir eftir 55 sekúndur og Kylian Mbappé bætti við öðru markinu á 40. mínútu. Franska stórstjarnan hefur skorað í fimm leikjum í röð.

Staðan í hálfleik var 2:0 en Brasilíumaðurinn Rodrygo gerði þriðja mark Real á 48. mínútu.

Alaves gafst ekki upp því þeir Carlos Benavidez og Kike Garcia skoruðu á 85. og 86. mínútu og minnkuðu muninn í eitt mark. Nær komst Alaves hins vegar ekki.

Real er í öðru sæti með 17 stig, einu stigi á eftir Barcelona sem á leik til góða. Alaves er í áttunda sæti með tíu stig.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert