Marc-André Ter Stegen, markvörður Barcelona, leikur sennilega ekki fleiri leiki á tímabilinu en hann varð fyrir alvarlegum hnémeiðslum í 5:1 sigri Börsunga á Villareal. Félagið tilkynnir þetta á heimasíðu sinni.
Ter Stegen er fyrirliði Barcelona en varamarkvörður hans er Inaki Pena. Búist er við að Katalóníuliðið kræki í markvörð á frjálsri sölu en Keylor Navas og Claudio Bravo hafa boðið sig fram.
Arnau Tenas, markvörður PSG og Ólympíumeistari með Spánverjum í sumar er einnig orðaður við félagið. Tenas var mikilsmetinn í La Masia akademíunni í Barcelona en gekk til liðs við PSG í sumar á frjálsri sölu.
Tenas hefur ekki spilað enn fyrir PSG en Gianluigi Donnarumma er aðalmarkvörður PSG.