Bayern München og Bayer Leverkusen skildu jöfn, 1:1, í þýsku 1. deildinni í fótbolta á heimavelli fyrrnefnda liðsins í dag.
Robert Andrich kom Leverkusen yfir með fallegu skoti utan teigs á 31. mínútu en Aleksandar Pavlovic jafnaði með ekki síður fallegu marki átta mínútum síðar og þar við sat.
Bayern er á toppnum með 13 stig eftir fimm leiki, Leipzig í öðru sæti með 11 og Leverkusen og Dortmund koma næst með tíu stig.
Mörkin úr leik dagsins má sjá hér fyrir neðan.