Landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði sigurmark Düsseldorf er liðið lagði Greuther Fürth á útivelli í B-deild þýska fótboltans í gærkvöldi, 2:1.
Düsseldorf fékk víti í uppbótartíma og steig Ísak á punktinn og skoraði af miklu öryggi, negldi upp í skeytin.
Markið hjá Ísaki má sjá hér fyrir neðan.
👤 Ísak B. Jóhannesson (f.2003)
— Áhugaverðar staðreyndir um íslenska knattspyrnu (@OReyndir) September 27, 2024
🇩🇪 Düsseldorf
🆚 Greuther Fürth
🇮🇸 #Íslendingavaktin pic.twitter.com/QnKfoXDueR