Rosenborg tryggði sér í dag sæti í bikarúrslitum norska fótboltans með útisigri á Røa, 3:1.
Landsliðskonan Selma Sól Magnúsdóttir lék allan leikinn með Rosenborg, en hún kom aftur til félagsins í sumar.
Hún lék fyrir liðið árin 2022 og 2023 og gekk svo í raðir Nürnberg í Þýskalandi.
Rosenborg mætir annað hvort Vålerenga eða Brann í úrslitum. Sædís Rún Heiðarsdóttir leikur með Vålerenga.