Leggur landsliðsskóna á hilluna

Antoine Griezmann og Kylian Mbappe með heimsmeistarabikarinn.
Antoine Griezmann og Kylian Mbappe með heimsmeistarabikarinn. AFP/Franck Fife

Franski knattspyrnumaðurinn Antoine Griezmann er hættur að spila fyrir landsliðið. Sóknarmaðurinn tilkynnti þetta á Instagram í dag.

Griezmann varð markakóngur EM 2016 og heimsmeistari með franska liðinu 2018 í Rússlandi en hann lék 137 landsleiki og skoraði í þeim 44 mörk.

„Með hjartað fullt af minningum lýk ég þessum kafla lífs míns. Takk fyrir yndislegt ævintýri. Við sjáumst fljótt“, skrifar Griezmann á Instagram-síðu sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert