Pólski markvörðurinn Wojciech Szczesny hefur gert samning við Barcelona sem gildir út leiktíðina.
Szczesny gaf það út fyrir fimm vikum að hanskarnir væru komnir á hilluna, þrátt fyrir að hann ætti eitt ár eftir af samningi sínum við Juventus.
Nú hefur honum snúist hugur og samþykkt samningstilboð spænska risans, sem kemur í kjölfar þess að aðalmarkvörðurinn Marc-André ter Stegen meiddist illa á hné.