Gömlu United-mennirnir skoruðu

Scott McTominay skoraði fyrsta mark leiksins.
Scott McTominay skoraði fyrsta mark leiksins. AFP/Isabella Bonotto

Napólí er komið með fjögurra stiga forskot á toppi ítölsku A-deildarinnar í fótbolta eftir heimasigur á Como, 3:1, í kvöld.

Scott McTominay kom Napólí yfir strax á 1. mínútu en Gabriel Strefezza jafnaði metin rétt fyrir hálfleik.

Romelu Lukaku kom Napólí aftur yfir á 53. mínútu með marki úr víti og varamaðurinn David Neres gerði þriðja markið á 86. mínútu.

Napólí er með 16 stig, fjórum stigum meira en Juventus í öðru sæti. Mílanóliðin Inter og AC koma þar á eftir með 11, eins og Tórínó.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert