Júlíus áfram í bikarnum eftir framlengdan leik

Júlíus Magnússon.
Júlíus Magnússon. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Júlíus Magnússon og félagar í Fredrikstad tryggðu sér sæti í undanúrslitum norsku bikarkeppninnar í knattspyrnu eftir 1:0-sigur á Vålerenga í framlengdum leik í kvöld.

Júlíus er fyrirliði liðsins og spilaði allan leikinn.

Staðan var 0:0 eftir venjulegan leiktíma svo farið var í framlengingu. Þar skoraði Morten Bjørlo eftir sjö mínútur og tryggði Fredrikstad 1:0-sigur

Fredrikstad mætir KFUM í undanúrslitum 30. október. KFUM er í 7. sæti norsku deildarinnar með 33 stig og Fredrikstad er þar fyrir ofan með 40 stig.

Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Sandnes Ulf og Molde.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert