Naumt tap hjá Ólafsvíkingnum í Meistaradeildinni

Sædís Rún Heiðarsdóttir í leik með íslenska landsliðinu.
Sædís Rún Heiðarsdóttir í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sædís Rún Heiðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, og liðsfélagar hennar í Vålerenga töpuðu með minnsta mun, 0:1, gegn ítalska stórliðinu Juventus þegar liðin áttust við í fyrstu umferð D-riðils Meistaradeildarinnar í Osló í kvöld.

Ólafsvíkingurinn Sædís Rún var í byrjunarliði Vålerenga og lék allan leikinn í stöðu vinstri vængbakvarðar.

Sofia Cantore skoraði sigurmark Juventus eftir tæplega hálftíma leik.

Hinn leikur riðilsins var ekki af verri endanum þar sem Manchester City fékk Evrópumeistara Barcelona í heimsókn og vann afar sterkan sigur, 2:0.

Naomi Layzell og Khadija Shaw skoruðu mörk Man. City.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert