Þrír Íslendingar komast á lista yfir 20 efnilegustu leikmenn Norðurlandanna í knattspyrnu karla.
Breski miðilinn DailyMail tekur saman listann en landsliðsmennirnir Orri Steinn Óskarsson og Hákon Arnar Haraldsson eru báðir á listanum.
Þeir léku saman hjá FC Köbenhavn í Danmörku en Orri leikur nú með Real Sociedad á Spáni og Hákon með Lille í Frakklandi.
Þá er William Cole Campbell einnig á listanum en hann er á mála hjá þýska stórliðinu Dortmund.
Cole, sem er 18 ára gamall, á íslenska móður en bandarískan föður. Hann hefur verið að spila með yngri landsliðum Bandaríkjanna og er líklegur til að velja þjóðina fram yfir Ísland.