Leeds upp í annað sætið

Pascal Struijk skoraði fyrir Leeds United í kvöld.
Pascal Struijk skoraði fyrir Leeds United í kvöld. AFP/Oli Scarff

Leeds United varð í kvöld fyrsta liðið til þess að leggja Sheffield United að velli á tímabilinu í ensku B-deildinni í knattspyrnu karla. Leikurinn fór fram á Elland Road í Leeds og unnu heimamenn 2:0.

Með sigrinum jafnaði Leeds bæði Sheffield United og Sunderland að stigum. Öll eru þau með 19 stig en Sunderland er á toppnum, Leeds í öðru sæti og Sheffield United í því þriðja.

Eftir markalausan fyrri hálfleik voru það Pascal Struijk og Mateo Joseph sem skoruðu mörk heimamanna í Leeds í síðari hálfleiknum.

Georges Baldocks, sem lék með Sheffield United um sjö ára skeið og lést í síðustu viku, var minnst fyrir leikinn í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert