Harry Kane var allt í öllu hjá Bayern München þegar liðið vann stórsigur gegn Stuttgart í 7. umferð þýsku 1. deildarinnar í knattspyrnu í München í dag.
Leiknum lauk með 4:0-sigri Bayern en Kane skoraði fyrstu þrjú mörk Bæjara, á 57., 60. og 80. mínútu áður en Kingsley Coman bætti við fjórða markinu á 89. mínútu.
Bæjarar tróna á toppi deildarinnar með 17 stig eftir fyrstu sjö umferðirnar, líkt og RB Leipzig, en ríkjandi Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen eru í fjórða sætinu með 14 stig.