Mbappé og Vinícius skoruðu í sigri Real

Kylian Mbappé og Vinícius Júnior skoruðu mörk Real í kvöld.
Kylian Mbappé og Vinícius Júnior skoruðu mörk Real í kvöld. AFP/Miguel Riopa

Real Madrid hafði betur gegn Celta Vigo, 2:1, í spænsku 1. deildinni í kvöld.

Frakkinn Kylian Mbappé kom Madrídingum yfir á 20. mínútu með stórkostlegu marki. Staðan 1:0 í hálfleik.

Willot Swedberg jafnaði metin á 51. mínútu fyrir heimamenn. Vinícius Júnior skoraði síðan sigurmark Real Madrid á 66. mínútu. 

Real jafnar Barcelona á stigum en situr áfram í öðru sæti á markatölu. Celta Vigo situr í 10. sæti deildarinnar með 13 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert