Íslendingaliðið tryggði sæti sitt

Arnór Ingvi Traustason í leik með íslenska landsliðinu.
Arnór Ingvi Traustason í leik með íslenska landsliðinu. Ljósmynd/Alex Nicodim

Íslendingalið Norrköping mun leika í sænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð en liðið tryggði sætið sitt í dag. 

Norrköping vann AIK, 1:0, en liðið er nú með 34 stig, fjórum stigum meira en Värnamo sem er í efsta fallsætinu þegar ein umferð er eftir. 

Arnór Ingvi Traustason var í byrjunarliði Norrköping en Ísak Andri Sigurgeirsson sat allan tímann á varamannabekknum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert