Glódís hafði betur í Íslendingaslag

Glódís Perla Viggósdóttir var á sínum stað í vörn Bayern …
Glódís Perla Viggósdóttir var á sínum stað í vörn Bayern München. AFP/Christof Stache

Bayern München hafði betur gegn Vålerenga, 3:0, í Íslendingaslag í 3. umferð C-riðils Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu í München í kvöld.

Bayern er eftir sigurinn í toppsætinu með fullt hús stiga, níu, en Vålerenga er á botninum án stiga.

Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Bæjara og íslenska landsliðsins, var á sínum stað í vörn Þýskalandsmeistaranna og lék allan leikinn.

Landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir lék fyrstu 79 mínúturnar fyrir Vålerenga.

Pernille Harder, Giulia Gwinn og Sarah Zadrazil skoruðu mörk Bayern í leiknum.

City með fullt hús stiga

Í D-riðli vann Manchester City lið Hammarby 2:0 í Manchester.

Man. City er sömuleiðis með níu stig á toppnum en Hammarby er í þriðja sæti með þrjú.

Laura Blindkilde braut ísinn fyrir Man. City í upphafi síðari hálfleiks áður en Aoba Fujino innsiglaði sigurinn tíu mínútum fyrir leikslok.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert