Heimi Hallgrímssyni langar að fá að spila leiki í janúar með írska karlalandsliðinu í fótbolta, likt og er gert hér á Íslandi.
Ísland sem og nokkur önnur lönd eru með ákveðinn janúarglugga þar sem margir leikmenn fá að spreyta sig sem spila í deildum heima fyrir.
Heimi langar að búa til álíka kerfi hjá írska landsliðinu. Hann vill meina að það hjálpi mikið til og þá fái hann að spila leikmönnum sem spila í írsku deildinni.
„Við erum að reyna gera þetta en það eru ekki enn peningar eða fjárhagsáætlun fyrir þessu.
Að fá þessa glugga hjálpar mikið og er nauðsynlegt til að víkkja sjónarhornið. Það er hins vegar ekki í rammanum í augnablikinu en gæti gerst í framtíðinni. Við þurfum að finna leið til að fjármagna þetta,“ sagði Heimir á blaðamannafundi.