Ungur landsliðsmaður látinn

Marco Angulo í leik með LDU Quito.
Marco Angulo í leik með LDU Quito. AFP/Galo Paguay

Ekvadorski knattspyrnumaðurinn Marco Angulo er látinn aðeins 22 ára gamall af sárum sínum eftir að hafa lent í bílslysi fyrir mánuði. 

LDU Quito, knattspyrnufélag Angulo í heimalandinu, sagði frá sorgarfréttunum í dag en Angulo lenti í bílslysi 7. október síðastliðinn og hafði verið á spítala síðan. 

Samkvæmt El Comercio í Ekvador gekk Angulo undir nokkrar aðgerðir og eyddi rúmri viku á gjörgæslu fyrir andlát sitt í gærkvöldi. 

Angulo var á láni hjá Quito frá Cincinnati í Bandaríkjunum en hann lék þrjá leiki fyrir landslið Ekvadors. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert