Didier Deschamps, þjálfari franska landsliðsins í knattspyrnu, biðlar til fréttamanna að láta fyrirliðann Kylian Mbappé í friði.
Mbappé er ekki í leikmannahópi Frakklands fyrir tvo leiki í A-deild Þjóðadeildar Evrópu í landsleikjahléinu sem er nýhafið.
Á fréttamannafundi var Deschamps spurður hvort hann hafi rætt við Mbappé um ákvörðun sína að skilja hann eftir heima.
„Ég hef sagt ykkur allt. Ykkur er frjálst að tala og túlka orð mín. Ég á leik fyrir höndum á morgun [í kvöld]. Það eru 23 leikmenn hérna. Kylian er ekki hérna, vinsamlegast látið hann í friði,“ sagði Deschamps.