Ronaldo skoraði tvennu í stórsigri

Cristiano Ronaldo fagnar í kvöld. Porto, on November 15, 2024. …
Cristiano Ronaldo fagnar í kvöld. Porto, on November 15, 2024. (Photo by Miguel RIOPA / AFP) AFP/Miguel Riopa

Cristiano Ronaldo skoraði tvívegis fyrir Portúgal þegar liðið vann stórsigur gegn Póllandi, 5:1, í 1. riðli A-deildar Þjóðadeildar karla í knattspyrnu í Porto í kvöld.

Ásamt Ronaldo voru þeir Rafael Leao, Bruno Fernandes og Pedro Neto einnig á skotskónum en Dominik Marczuk skoraði mark Pólverja.

Þá tryggði John McGinn Skotlandi dýrmætan sigur gegn Króatíu, 1:0, í hinum leik riðilsins í Glasgow.

Portúgal er með 13 stig í efsta sætinu og er komið áfram í 8-liða úrslit keppninnar en Króatía er í öðru sætinu með 7 stig. Króötum dugar stig gegn Portúgal í Split í lokaumferðinni til þess að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitunum.

Pólland og Skotland eru jöfn með 4 stig í þriðja og fjórða sætinu og mætast í hreinum úrslitaleik í Varsjá á mánudaginn um það hvort liðið fellur í B-deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka