Portúgalinn Joao Palhinha, miðjumaður Bayern München, verður frá næstu vikurnar vegna meiðsla.
Bayern staðfesti tíðindin í dag en Palhinha missti af landsleikjum Portúgals gegn Póllandi og Króatíu í Þjóðadeildinni.
Palhinha gekk í raðir Bayern frá Fulham í sumar en hann hefur aðeins náð að byrja þrjá deildarleiki.