Ný treyja til heiðurs Ronaldo

Cristiano Ronaldo hóf feril sinn hjá Sporting.
Cristiano Ronaldo hóf feril sinn hjá Sporting. AFP/Miguel Riopa

Portúgalska félagið Sporting frá Lissabon hefur gefið út nýja þriðju treyju fyrir tímabilið sem er til heiðurs portúgölsku goðsagnarinnar Cristiano Ronaldo.

Ronaldo hóf feril sinn hjá Sporting áður en hann gekk til liðs við Manchester United árið 2003.

Sporting hefur farið vel af stað í efstu deild Portúgals í knattspyrnu en liðið er á toppnum með 33 stig.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert