Hrikaleg andlitsmeiðsli markvarðar Parísarliðsins

Wilfried Singo fór með takkana beint í andlitið á Gianluigi …
Wilfried Singo fór með takkana beint í andlitið á Gianluigi Donnarumma. AFP/Valey Hache

Ginaluigi Donnarumma, markvörður franska stórliðsins París SG, fékk takkana á Wilfried Singo beint í andlitið í sigri Parísarliðsins á Mónakó, 4:2, í efstu deild franska fótboltans í Mónakó í kvöld. 

Donnarumma þurfti að fara af velli á 24. mínútu eftir atvikið en þrátt fyrir það tókst Parísarliðinu að vinna mikilvægan sigur og er nú með tíu stiga forskot á toppi deildarinnar. 

Hér fyrir neðan má sjá Donnarumma eftir atvikið:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert