Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnardóttir skoraði tvö mörk fyrir Al-Qadisiya sem gerði 3:3 jafntefli gegn Al-Ahli í efstu deild í Sádi-Arabíu í dag.
Staðan var markalaus í hálfleik en Al-Qadisiya lenti 2:1 undir á 77. mínútu. Sara jafnaði metin á 80. mínútu en liðið lenti 3:2 undir fimm mínútum síðar.
Sara bjargaði deginum aftur þegar hún jafnaði leikinn aftur með öflugu skallamarki á þriðju mínútu uppbótartímans.
Al-Qadisiya er í fjórða sæti deildarinnar með 15 stig eftir níu umferðir.