Ólafur samdi í Noregi

Ólafur Guðmundsson er genginn til liðs við Aalesund.
Ólafur Guðmundsson er genginn til liðs við Aalesund. Ljósmynd/Aalesund

Knattspyrnumaðurinn Ólafur Guðmundsson er genginn til liðs við norska félagið Aalesund frá FH. Skrifaði hann undir þriggja ára samning, til loka ársins 2027.

Ólafur, sem er 22 ára gamall miðvörður, var samningsbundinn FH til loka þessa árs og kaupir Aalesund hann því af Hafnarfjarðarfélaginu.

Hjá Aalesund hittir Ólafur fyrir jafnaldra sinn Davíð Snæ Jóhannsson, sem einnig var keyptur til norska félagsins frá FH.

Aalesund leikur í norsku B-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert